|
Í Sögusafninu eru 17 mjög raunsæjar
leikmyndir frá þekktum atburðum og 30 sögufrægum
persónum úr Íslandssögunni. Safnið er
staðsett í einum af hitaveitutönkum Perlunnar í
Öskjuhlíð og er ætlað fólki á
öllum aldri, jafnt útlendingum sem Íslendingum.
Þetta
er líflegt safn þar sem gestum gefst tækifæri
til að kynnast Íslandssögunni í máli og
myndum á skemmtilegan og fræðandi hátt.
Hægt er að panta fyrir hópa á opnunartíma
og eftir lokun. Ef pantað er eftir lokun er hægt að panta
fordrykk eða aðrar veitingar með.
|